14. mar. 2010

Lokahóf Powerade


Glæsilegt lokahófið í Powerade seríunni. Náði mínum besta árangri hingað til, bæði í hlaupatímum og lokaúrslitum. Endaði í 2. sæti í heildarkeppninni á milli Arndísar og Írisar (ekki slæmur félagsskapur) og í 1. sæti í mínum aldursflokki. Gaman að sjá fullt af vinum og félögum uppskera eftir veturinn.

Saknaði þess nú samt að sjá engann af mínum gömlu hlaupafélögum á palli... Ohh well.
Posted by Picasa

1 ummæli:

  1. Hæ Eva...

    Ég ætla að taka á honum stóra mínum og fara að hugsa betur um sjálfa mig og hafa nóg skemmtilegt fyrir stafni (það vinnur á leiða-sukki og vanlíðan). Á meðan ætla ég að æfa mig að hlaupa og lesa síðuna þína endrum og eins því ég lít upp til þín :) Gangi þér allt í haginn í lífi og leik og ég heilsa þér örugglega einn daginn á hlaupabrautinni. Kveðja, ein sem er í startholunum

    SvaraEyða