16. mar. 2010

Fastandi

Nei, ekki nýr megrunarkúr...  Ég er að fara í aðgerð á morgun.  Ætla loksins að láta drauminn rætast og fá mér RISA BRJÓST! 

Thí, hí, vá hvað ég yrði asnaleg þá.  Nei, ég er nú bara að fara í mjög óspennandi æðahnútaaðgerð en ég fékk einn krúttlegan á kálfann þegar ég gekk með hana Lilju mína.  Ég fór í skoðun fyrir nokkru og spurði lækninn hvort það væri eitthvað sem ég hefði getað gert til að fyrirbyggja þetta, t.d. hreyfa mig eða borða hollan mat... :þ

Nei, þetta er arfgengur andskoti, svaraði doksi.  Erfist í beinan fótlegg.

1 ummæli:

  1. Batakveðjur. Gangi þér vel að vera hlaupalaus næstu daga. Þú prjónar þá bara þeim mun meira. Ég er einmitt að fitja upp á peysu fyrir soninn sem kvartaði sáran um að hafa ekki enn fengið neitt prjónað frá mömmu (amk síðan hann var ungi).

    Og svo bara löppin upp í loft Eva mín.

    SvaraEyða