11. mar. 2010

Fyrir og eftir

Mér var boðið að taka þátt í rannsókn á nýrri vöru sem er væntanleg á markað innan skamms. Um er að ræða dropa til að bera á andlitið og ef allt gengur eftir verð ég aftur eins og fermingarstúlka í framan. Ég var reyndar frekar ellilegur unglingur.  Held meira að segja að ég sé nú bara unglegri núna, án dropanna...



En alla vega, í gærkvöldi mætti fríður hópur til ljósmyndara sem smellti af okkur 'Fyrir' mynd. Eftir tvær vikur er mæting á sama stað og sama tíma til að taka 'Eftir' mynd.

2 ummæli:

  1. Jeminn hvað það er gaman að sjá þessar fermingarmyndir af þér. Þú ert mun unglegri nú en þá. Hvernig verður þetta eftir nokkrar vikur. Vonum bara að þú breytist ekki í ungabarn :)

    SvaraEyða
  2. Ferlega töff fermingamyndir af þér Eva en þú ert nú mun unglegri í dag:-)
    kveðja Hafdís

    SvaraEyða