23. apr. 2011

25 vikur

Komin tími á bumbumynd, í dag er ég akkúrat komin 25 vikur.  Hlaupin ganga eins og í sögu, hleyp 5-6 km 2-3 í viku og svo eitt 10 km hlaup um helgar.  Gæti ekki haft það betra og nýt þess til hins ítrasta að vera ólétt.  Litla krílið okkar er sérstaklega aktívt, alltaf nóg að gerasta, spörk, kollhnísar og ég veit ekki hvað. 


Lilja fékk að vera með í dag :)
Við njótum þess í botn að vera í páskafríi og næst á dagskrá hjá okkur er ferð í Blá Lónið.  Svo er spurning um að fá sér snarl í Keflavík og kíkja á Skessuna. 

4 ummæli:

  1. Þetta er svo sæt kúla og þú lítur svo vel út :) Gangi þér vel með hlaupin og meðgönguna, dáist að þér kona!! Gleðilegt sumar og gleðilega páska.
    Klem frá Norge, Sigga Júlla

    SvaraEyða
  2. Takk fyrir og sömuleiðis, þ.e. gleðilegt sumar, páska og hlaup :) Bið að heilsa Norge, er farin að plana sýningarferð með nýjasta fjölskyldumeðliminn næsta vor til fjölskyldunnar minnar þar!

    SvaraEyða
  3. Stórglæsileg!
    Nú þarf ég að koma mér í form svo ég verði svona á næstu meðgöngu :)

    SvaraEyða
  4. Takk,takk. Já það er rosa munur að vera í góðu formi, hef prófað bæði :). Það skiptir mig líka öllu máli að hreyfa mig upp á vellíðan dags daglega, hvort sem ég er ólétt eður ei.

    SvaraEyða