29. sep. 2010

Arghhhh!!!

Ég er hundleið á þessum degi og eins gott að það sé hlaupaæfing á eftir, sem ég n.b. nenni ekki á þessa stundina! Skítaveður, glötuð ríkisstjórn, apakettir á Alþingi, njólar í kjallaranum og svo hringdi sonur minn í mig rétt í þessu með kökkinn í hálsinum, búið að stela hlaupahjólinu hans í skólanum.  

Hann sem er svo passasamur með hlaupahjólið sitt.  Fékk meira að segja leyfi hjá umsjónakennaranum til að geyma það inní skólastofunni.  Í dag var heimilisfræði í síðasta tíma og þá þurfti hann að taka það úr heimastofunni sinni því henni var læst, mátti ekki taka það með inn í heimilisfræða stofuna og þurfti að skilja það eftir fyrir utan dyrnar. 

Nú langar mig í súkkulaði og ég ætla ekki að fá mér.  Þá vinn ég.

3 ummæli:

  1. Keypu nýtt hlaupahjól handa Gabríel frá mér, láttu mig vita hvað það kostar og ég sendi þér pening.

    Einsi

    SvaraEyða
  2. Elsku Einsi, takk fyrir :) Hlakka til að segja honum frá þessu eftir skóla í dag. Love you!

    SvaraEyða