29. mar. 2015

Þvílík móðgun...

Ég á fjóra eldri bræður og ég velti því stundum fyrir mér hvernig mamma lifði af uppeldisárin.  Fjórir gaurar fæddir á fimm árum, engir peningar til og það sem er mér óskiljanlegast, hún átti ekki einu sinni þvottavél!  Og ég segi viljandi 'hún'.

Um það leyti sem ég kom í heiminn eða þar um bil, en þá voru stákarnir ca. 9-14 ára, bjuggum við nýbyggingu í norðanverðum Laugarásnum.   Húsið var með útsýni yfir Esjuna og höfnina, sem þá var verið að byggja upp.  Hafnarsvæðið var uppáhaldsleiksvæði hjá krökkunum og af sögunum sem ég hef heyrt stórhættulegt, enda engin Herdís Storgaard að passa uppá börnin okkar í þá daga.

Eitt skiptið komu stákarnir heim með drulluskítuga samfestinga sem þeir fundu niður á höfn, allir út í olíu og ógeði, en þeir voru skildir eftir af verkamönnum með öðru sorpi.  Bræðrum mínum þótti mikið sport að dressa sig upp í þessari múnderingu og spígspora um bæinn.

Einn daginn var mamma að sýsla í eldhúsinu og verður litið út um gluggann.  Hún sér gamla konu sem greinilega er á leið úr mjólkurbúðinni með mjólkurfernur í mjólkurnetinu sína, rölta í áttina að Badda bróður í ógeðsdressinu og gefa sig á tal við hann.   Eftir nokkra stund tekur hún sig til, sveiflar netinu með mjólkurfernunnum og slær bróður minn kaldan í jörðina.  Mamma stekkur út, hleypur til þeirra og spyr hvað í ósköpunum gangi á?

'Það kemur þér ekkert við!' segir sú gamla.  Mamma segir það ekki rétt, hún sé móðir drengsins sem liggi í götunni.  Þá snýr sú gamla uppá sig og rýkur í burtu.  

Þegar Baddi rankar við sér og mamma fer að spyrja hann út í atburðarásina þá kemur í ljós að sú gamla hafði skammast yfir útganginum á honum og spurt hann hvar í ósköpunum hann hefði fengið þessa múnderingu.

Baddi bróðir svaraði: 'Í Herradeild PÓ!'.


Herradeild PÓ var flottasta tískuverlsunin í bænum, meira um það hér!



12. feb. 2015

Taka tvö

Ég lifi og hrærist í umhverfi þar sem allt gengur út á 'continuous improvement', stöðugar framfarir og að draga lærdóm af síðasta verkefni.  Það gaf því auga leið að eftir frumraunina, með öllum þeim mistökum sem ég gerði, þá var ekkert annað í stöðunni en að leggja í töku tvö.  Ætli ég sé ekki svona þrisvar sinnum fljótari núna, er með munstrið í puttunum og kollinum.  Þessi peysa verður í ljósum lit úr garni sem er ullarblanda og hún á að vera aðeins síðari en ekki síðri en sú fyrsta.  

Vika 1.




10. feb. 2015

I'm a runner

The date is May 7th 2002.  I sneak out at the crack of dawn and run/walk a 2k route around my neighborhood, my first run... ever.   A colleague of mine had somehow, with her supernatural powers, managed to convince me that even I could run.  I was thirty years old, had never done any kind of sports, been overweight all my life, smoked two packs a day for years and to put it simple, really excelled at self destruction in any way shape or form...

When I got back home I wrote down the distance and the time in a little notebook, as she had suggested.  The next day I did it again and the day after that.  A few days later I ran a little further.  I got huge blisters on the insoles of both my feet and after two weeks of running in my old trainers, I bought my very first pair of running shoes.  Another round of blisters and a couple of weeks later after inserting new orthotics, I went through round three, the final round.  I had heard somewhere that if you kept at it for six weeks you would become a runner and that was something I really wanted.  I didn't question it,  I never looked back and I never considered quitting.

I remember when I bought my first pair of running tights and I was too embarrassed to wear them.  I stuffed them in the back of my closet.  A few weeks later I visited my brother in the country and tried them out where no one knew me.  I still have them. 

I will never forget my first race.  My goal was to run a sub 60 minute 10k, which I did, the time 54:39.  Later that year I ran a sub 50 (48:46).  In the final stretch a girl passed me and beat me by 2 seconds.  I still remember the feeling and I wowed I would NEVER let it happen again.  A week later I placed second in a race and experienced my first time on the podium.  I didn't touch the ground for days.  Once you have had a taste of the podium it is irresistible.

I have participated in 272 races, running, cycling, bi- and  triathlons and raced my way to the podium in most of them.  I have been the national champion in 5000 m, 10 km road racing, cross-country running, in an ultra marathon 55k, bicycle road racing and set a new national record in half Iron man triathlon distance.   I have run three marathons, the last one on my birthday in 2008 where I ran a PB 3:09 and placed 5th on the all time Icelandic female marathon top finisher list.  Winning the Laugavegur Ultra 55k that same year is probably my sweetest victory to date.  I‘m very fortunate to be married to a runner, who understands what it‘s all about.

In the last twelve and a half years I have run 26.517 km or approximately 70% of the Earths circumference (38.600 km :) and I plan to complete the distance before I‘m fifty.  Then I‘ll start round two.   I have had some injuries, none that were serious.  I was diagnosed with a herniated spinal disc a few years ago, running helps me keep it in check so it doesn't affect my quality of life.  I have run my way through 6 pregnancies, four miscarriages, two full term and given birth to two amazing human beings in record time.  Today I am 43 years old and weigh exactly forty kilos less than twenty years ago.

Running has taught me that you reap what you sow and that is a valuable lesson.  Through running I have met the people I admire the most in life and the least.  It‘s good to be able to recognize both.  I wouldn't be the person I am today if it wasn't for running and I like the person I see in the mirror every morning and I make sure I care for her. 

Who am I?  I‘m a daughter, sister, mother, wife, friend, acquaintance, good, bad, naughty, funny, a winner and so much more.

And yes, I‘m a runner.  

1. feb. 2015

Mission accomplished

Já það tókst um miðjan síðasta mánuð að klára verkið!   Peysan er æðisleg, hlý og góð.  Hélt reyndar að ég hefði klúðrað þessu algjörlega þegar ég ætlaði aðeins að setja hana í skol og leggja til, áttaði mig ekki á að skol prógrammið á velinni minni með ofurþeytivindu í lokin...   Var ekkert sérstaklega kát þegar ég tók hana úr vélinni og sá að hún hafði skroppið ansi mikið saman og þéttst.  En þegar hún þornaði, þremur dögum síðar, var hún bara akkúrat passleg.  Hjúkkit.  Nokkrar myndir af dýrðinni, gjörið svo vel.  Og já ég byrjuð á annarri, hún verður 'off white' og ég verð örugglega helmingi fljótari, búin að gera öll mistökin og læra af þeim.  Tatahh...




26. jan. 2015

Running Retrospect 2014

2014 var fyrst og fremst afar ánægjulegt hlaupaár hjá mér, stútfullt af góðum minningum og lærdómi.

Árið byrjaði með miklum kulda og endalausum klaka og það átti eftir að hafa áhrif á plön sem gerð voru á sumarkvöldi árinu áður og fyrir fótbrot...  Eftir ágætis janúar Powerade fékk ég lungnabólgu í fyrsta sinn og ég var heillengi að jafna mig á því, alveg 6 - 8 vikur.  Febrúar Powerade bar þess merki og það var rétt svo að ég hafði það alla leið í mark... þurfti í fyrsta sinn á ævinni að stoppa (fyrir utan fótbrotið náttla) í miðju keppnishlaupi, taka mig saman í andlitinu til að klára.  

Í febrúar vorum við byrjuð að undirbúa okkur fyrir Milanó maraþonið og þá kom annað smá áfall.  Á hádegisskokki með vinnufélögunum rann ég til í hálkunni og datt asnalega, beint á rassinn ofan á ökklann og yfirspennti á mér hnéð.  Ég var nú ekki alveg til í að gefa maraþondrauma upp á bátinn einn, tveir og þrír en eftir dettið gat ég skokkað án óþæginda en ekki tekið neinn hraða og þegar það fór að telja í vikum kyssti ég Mílanó bless.

Mars og Apríl báru merki veikindanna og hnjasks en þegar tók að vora var ég orðin strýheil og fín. Ég tók þátt í nýju utanvegahlaupi með vinnufélögunum í Þórsmörk sem var mjög skemmtilegt og Icelandair hlaupið var gott, ég jafnaði besta tímann minn.  Varð svo Íslandsmeistari með sveitinni minni í Víðavangshlaupi Íslands tveimur dögum síðar.

Ég tók þátt í nýju 5 km hlaupi, Séra Friðrikshlaupinu sem er hlaupið á sömu braut og Miðnæturhlaupið og þar náði ég PB, hljóp á 19:27 og komin í topp form. 

Við áttum eftirminnilegt hlaup í Kaliforníu, hálf maraþon á ströndinni í 26 stiga hita.  Hljóp á 1:30:40, ein í hitanum og eftir allt þetta ferðalag.  Var mjög sátt við það og árangurinn kom mér á óvart.

Tveim dögum eftir heimkomuna var svo Hvítasunnuhlaup Hauka á dagskrá og þar náði ég að bæta tímann minn frá því í fyrra.  Þrem dögum seinna Álafosshlaupið og svo Gullspretturinn og ekki frá því að pínu þreyta væri komin í gömlu en ó hvað var allt saman gaman.

Ég tók þátt í Mt. Esja Ultra II aftur eftir hlé í fyrra og bætti þar tímann minn og sett nýtt brautarmet.  Esjuhlaupið tekur aðeins úr manni og borgaði fyrir það á Akureyri þar sem ég bombaði algjörlega sælla minninga :)

Ármannshlaupið var tímamótahlaup, ár frá fótbroti og blendnar tilfinningar að hlaupa í brautinni.  Þokkalegasta hlaup og ég tryggði mér Íslandsmeistaratitill í aldursflokki í 10 km götuhlaupi.

Endaði sumarið á góðu hálf maraþoni í Reykjavík, besti tíminn minn í nokkur ár 1:29:44 og 3. íslenska kona í mark.  Fimm dögum síðar fór ég vel undir 20 mínútur í 5 km í Fossvogshlaupinu og hljóp svo mitt besta 10 km hlaup á árinu fimm dögum þar á eftir.  Það var í Reykjanesmaraþoninu og tíminn 40:32.  Var greinilega að toppa á árinu í lok ágúst, byrjun september.

Skemmtilegustu hlaup haustsins og vetrarins voru Vestmanneyjahlaupið þar sem ég tók þátt í hálfu maraþoni í hrikalega fallegri og erfiðri braut.  Síðsumars og snemm hausts snérist allt um að æfa fyrir hálf maraþon í Munchen þar sem átti að rústa þessu tremma í hel, en það gekk nú ekkert allt of vel...
En... frábært að taka þátt í svona stóru hlaupi aftur og þetta var góð lexía fyrir mig.

Slakaði aðeins á eftir Munchen en var svo komin á fulla ferð í æfingum í desember.  Jafnvel of mikla ferð, komst að því að ég væri aðeins að fara fram úr mér í Gamlárshlaupinu þar sem ég hljóp á tómum tanki.

Samantekt á keppnisárinu 2014 segir mér þetta:

  • Tók þátt í 32 keppnishlaupum
  • Sigraði í 11 keppnum
  • Silfur í 8 keppnum
  • Brons í 6 keppnum
  • PB í 5 km
  • Setti brautarmet í Mount Esja Ultra II


Listi yfir keppnishlaupin mín og árangur árið 2014

Powerade 10km 9. janúar
43:00
2.sæti 1.sæti í aldursflokki

Powerade 10km 13. febrúar
43:32
6. sæti 3. sæti í aldursflokki

Powerade 10km 13. mars
3. sæti 2.sæti í aldursflokki

Úrslit í Powerade hlaupaseríunni 13. mars
1. sæti í parakeppni
2. sæti af öllum konum

Hlaupasería Actavis og FH 27. mars
20:12
2. sæti

Flóahlaupið 10km 5. apríl
42:02
2. sæti

Volcano trail run 12km 3. maí
1:46:21
1. sæti

Icelandair hlaupið 7km 8. maí
28:14
4. sæti

Víðavangshlaup Íslands 10. maí 
3. sæti kvenna
Íslandsmeistari í sveitakeppni

Friðrikshlaup 5km 25. maí
19:27
1. sæti á Personal Best

Blast the Bay half marathon California 31. maí
1:30:40
1. sæti

Hvítasunnuhlaup Hauka og Sportís 9. júní
1:25:57
2. sæti

Álafosshlaupið 12. júní
38:07
1. sæti

Gullspretturinn 14. júní
43:20
2. sæti

Mount Esja Ultra II 21. júní
1:44:51
1. sæti og nýtt brautarmet

Akureyrarhlaup ÍV og Átaks 3. júlí
19:57
1. sæti

Ármannshlaupið Íslandsmeistaramót í 10 km 9. júlí
41:31
3. sæti - Íslandsmeistari í aldursflokki

Meistaramót Íslands 3000 m 13. júlí
11:19
4. sæti


Meistaramót Öldunga 3000 m 19. júlí
11:22
1. sæti - Íslandsmeistari Öldunga

Vatnsmýrarhlaupið 5 km 7. ágúst
20:04
3. sæti

Brúarhlaupið 10 km 9. ágúst
41:55
3. sæti

Línuhlaup Þróttar ca. 10 km 16. ágúst
44:44
1. sæti

Reykjavíkurmaraþon hálfmaraþon 23. ágúst
1:29:46
4. sæti

Fossvogshlaupið 5 km 28. ágúst
19:44
2. sæti

Reykjanesmaraþon 10 km 3. september
40:32
1. sæti SB

Vestmannaeyjahlaupið hálfmaraþon 6. september
1:34:56
1. sæti

Flensborgarhlaupið 5 km 23. september
20:11
1. sæti

Hjartadagshlaupið 10 km 28. september
41:13
2. sæti

Munchen hálf maraþon 12. október
1:32:04
21. sæti 5. sæti í aldursflokki

Haustþon FM 25. október
1:32.16
3. sæti

Valshlaupið 10 km 29. nóvember
41.32
4. sæti


Powerade 10 km 11. desember
44.23
2. sæti


Gamlárshlaup ÍR 10 km 31. desember
42.29
7. sæti - 1. sæti í aldursflokki

1. jan. 2015

Gamlárshlaupið 2014 - Missi og finn mojo-ið aftur.

Ég æfi oftast ein á mínum hraða.  Þannig hefur það verið í gegnum árin.  Er annað hvort aðeins hraðari eða aðeins hægari en hlaupafélagarnir.  Ég kann því bara vel, er mjög öguð og held mig við formúlur.  En... það er svo gaman að æfa með einhverjum og nú í haust hef ég einmitt fengið að hlaupa með félaga og þegar hún fór fram úr mér í getu þá fylgdi ég eftir og jók æfingaálagið eins og ég væri búin að bæta mig umtalsvert.  Svoooo gaman.  Ég ræð frekar vel við æfingarnar, drulluerfitt en hrikalega gaman að geta klárað.  Samt veit ég manna best að ef maður er að taka spretti hraðar en formúlan segir, þá er maður ekki að leggja í bankann, heldur taka út....  Hver einasta æfing er eins og keppni og þegar kemur að keppni er engin inneign.  Ég bara ýtti þeirri hugsun lengst aftur í hnakka.  

Þangað til í gær.  Vorum nú alveg á báðum áttum um að vera með fram á síðustu stundu, vorum bara þreytt eftir veisluhöld undanfarinna daga, önnur veisla hjá okkur um kvöldið og afmælið hennar Lilju eftir 3 daga.  En einhvern veginn er það ekki í manni að hætta við fyrst við vorum búin að skrá okkur.

Leið bara þrusu vel að morgni keppnisdags.  Fínar aðstæður og þetta leit bara vel út.  Þvílík stemmning eins og alltaf og ég var spennt og glöð að leggja í hann.

Myndir af FB síðu Gamlárshlaupsins.
Voða hress eitthvað...
Það entist ekki lengi.

Eftir tvo km á hóflegum hraða var ég að ströggla.  Hvaða rugl er þetta!  Þreytt í fótunum, öxlunum, puttunum, hárinu...   Móð og másandi.   Hugsaði fyrst um að hætta eftir 4-5 km.  Of erfitt, ekki gaman.  Fann hraðann dala, erfitt, erfitt.

Að andast, með gervigrettubros...

Svo fóru hlauparar að rúlla fram úr og ég gat ekkert brugðist við.  9. km var skelfilegur.  Ég vissi af 4-5 konum fyrir framan mig en huggaði mig við að þær voru allar miklu yngri en ég og ef ég myndi ekki alveg missa það á síðustu km myndi ég fá gull í aldursflokki.   Rétt fyrir síðasta km fara nokkrir félagar mínir fram úr mér og ein skvísa og það sem verra er, í mínum aldursflokki...  Aldursflokka verðlaunaafhendingin farin líka...   Allt ónýtt.

Eftir heljarinnar baráttu í kollinum á mér tókst mér að bæta örlítið í síðasta km og hélt þokkalegum hraða í restina.  Á endasprettinum heyrði ég Þórólf hvetja mig, fyrst svona almennt en rétt eftir að ég fór framhjá breyttist tónninn og ég skildi að það var einhver kona í hælunum á mér.  Notaði síðustu orkudropana til að drullast í mark, tíminn 42:29, algjörlega búin.  Eftir 10 km hlaup á hálf-maraþon pace-inu mínu!!!

Komin í mark og stend varla í lappinar lengst til hægri.

Stöldruðum ekki lengi við eftir hlaupið, var köld og ómöguleg.  Svo var eins gott að koma sér heim að undirbúa veisluna um kvöldið.  Var alveg á því að hætta þessu keppnisbrölti og snúa mér alfarið að prjónunum!

Svo komu úrslitin.  Og sú sem fór fram úr mér var ekkert í mínum flokki, miklu yngri en ég.  (Djö, var ekki einu sinni á staðnum til að taka á móti verðlaunum, lexía!)  Og tíminn var nú ekkert svo hræðilegur.  Og eftir að hafa velt þessu öllu saman fyrir mér þá veit ég alveg hvað var í gangi.  Og ég er svo heppin að átta mig áður en ég meiðist eða lendi í tómu tjóni eða ofþjálfun.  Og það eina sem ég þarf að gera er að bakka aðeins og fara að æfa aftur á mínu pace-i.  Og þá verður allt gott aftur.  Og ég finn gleðina við að keppa.  Hey, hvenær er annars næsta Powerade?  Get ekki beðið!!! 

Hérna eru úrslitin og svona hljóp ég þetta:

1 - 4:03
2 - 4:06
3 - 4:16
4 - 4:19
5 - 4:08
6 - 4:09
7 - 4:22
8 - 4:19
9 - 4:24
10 - 4:08

22. des. 2014

Á erminni

Búin með hliðarnar og byrjuð á ermi.  Nú fer þetta að vera spennandi og komin mynd á þetta hjá mér.  Næ örugglega ekki að klára fyrir jól en hugsanlega í jólafríinu, það væri fínt.

Vika 6

Æfingar ganga eins og í sögu.  Er svo heppin að vera með æfingafélaga sem ýtir mér út fyrir þægindarammann og ég er að taka hraðari spretti en nokkru sinni fyrr.  Nýt þess að vera í toppstandi, þá er allt skemmtilegra.

Annars snýst mest um krakkana og jólin núna.  Við höfum aldrei áður verið tímanlega í undirbúningi og í minningunni erum við alltaf grútsyfjuð að klára að skreyta, pakka og græja seint á Þorláksmessu. 

Ekki í ár skal ég segja ykkur!  Jólatréð var komið upp um síðustu helgi, pakkarnir komnir undir með merkimiðum, maturinn stendur klár í ísskápnum og búin að plana jólaboðin.  

Nú dúllum okkur við að baka, leika okkur og njóta aðventunnar eins og manni dreymir um, mmmm.... mæli með'essu.