Er hægt að halda Íslandsmeistaramót í útlöndum?
Pæling.
11. okt. 2010
9. okt. 2010
Geðhlaup og Viðey
Frábær dagur að baki og okkur tókst gera órúlega mikið og skemmtilegt. Við Lilja byrjuðum daginn á fimleikum, henni finnst svoooo gaman, það er alveg frábært að fylgjast með henni blómstra þarna. Afi Þór kom og sótti krakkana í hádeginu og bauð þeim á búlluna og tók þau með sér í heimsókn til ömmu Kollý en hún er á spítalanum núna.
Þórólfur var ákveðinn í að vera með í Geðhlaupinu en ég var tvístígandi fram á síðustu stundu, ákvað svo að vera með til að styrkja gott málefni og taka þetta sem tempó æfingu. Veðrið var alveg frábært en ég hafði dúðað mig full mikið út af kvefinu, var í þykkri svartri síðerma peysu og var ekki með neitt aukadót með mér. Það var alveg steikjandi hiti og sól á ráslínu og mínútu fyrir start ákvað ég að rífa mig úr peysunni til þess að kafna ekki og hlaupa bara á toppnum! Þetta er n.b. í fyrsta skipti sem ég hleyp bara á topp og það í október, nýstiginn upp úr pest... Eftir 500 m dró fyrir sólu og mér var ekki alveg að lítast á þetta en sem betur fer varð mér ekkert kalt á leiðinni. Mjög góð leið til að æfta magavöðvana, hljóp alveg teinrétt svo bumban (haust aukakílóið) færi ekki yfir strenginn þegar Torfi var að taka myndir. Er búin að semja við hann um að paintshoppa sixpack á mig ef þess þarf! Hlaupið var frábært, var klukkulaus og tók þetta bara á gleðinni, var með í huga að halda ca. hálf maraþon pace. Endaði á rétt um 43 mínútum, alsæl með það og ekki verra að vera fyrsta kona í mark. Þórólfur varð þriðji og við vorum leyst út með blómum, geisladiskum, usb lykli og viðurkenningarskjali. Það er alltaf svo kósí að vera með í svona smærri hlaupum, þeir sem standa að þeim þykir svo svakalega vænt um það.

Gömlu hjónin sátt með Geðhlaupið
Eftir snurfuss og búðarferð renndum við í heimsókn til Ástu systur og gátum losað okkur við annan blómvöndin þar, áður en við brunuðum heim og græjuðum okkur fyrir Viðeyjarferð. Gabríel ákvað að vera heima með vini sínum en Lilja var til í tuskið. Ótrúlega skemmtileg ferð og svo sannarlega ógleymanlegt kvöld hjá okkur. Þakka bónda mínum þessa frábæru hugmynd.
Í bátnum á leiðinni í Viðey
Geðveikt gaman!
Lilja tók þessa mynd af mömmu og pabba!
Friðarsúlan
Lilja fann stafinn sinn
8. okt. 2010
Friðarsúlan
Aumingja þeir sem eru bakveikir segi ég nú bara, þeir eiga alla mína samúð!
Á þriðja degi í hlaupahvíldinni minni fór ég að finna fyrir stífleika í bakinu og blótaði því í sand og ösku að hafa tekið hlaupahvíld píld skíld... Ég var nú samt alveg róleg yfir þessu fyrstu dagana og beið átekta, át íbúfen en ég var alveg jafn slæm ef ekki verri eftir 3-4 daga. Þrjár vikur af því að geta varla komist í sokkana, rétt svo geta staðið upp úr stól og ekki séns að lyfta börnunum mínum, þá var nóg komið og ég fór til hans Rúnars sjúkraþjálfara. Þá var ég farin að ímynda mér að ég væri komin með brjósklos eða eitthvað þaðan af verra. Hann potaði í bakið á mér og sagði ojjj... ekki myndi ég vilja éta svona kjöt! Hmmm... Ég var pikkstíf frá rassi og upp að herðablöðum, sérstaklega slæm hægra megin og þegar ég reyndi að vinda uppá mig gerðist bara ekkert. Á bekkinn fór ég og Rúnar nuddaði, hnykkti efstu hryggjarliðunum og setti mig í stuttbylgjur. Svo kom að mjóbakinu og það þurfti alveg sérstakar trakteringar í það. Leggjast á hliðina á jaðarinn á bekknum, svo teygði hann hnéð í aðra áttina og öxlin í hina og svo 'Hadjahhhh....'. Var pínulítið að spá í hvort ég hefði brotnað í tvennt eitt augnablik en hmmm... var ekkert verri eftir trakteringarnar. Það er skemmst frá því að segja að daginn eftir fann ég varla fyrir nokkru og í gær var ég allt í einu komin í sokkana áður en ég vissi af. Fór aftur til hans í dag af því ég átti tíma og hann kórónaði meðferðina með því að stinga í mig nokkrum nálum og tók svo eina umferð í viðbót af nuddi og hnykki. Ekki nóg með að ég er orðin góð í bakinu núna, það sem meira er, ég er orðin góð í skapinu! Það verður alveg ótrúlega stuttur í manni þráðurinn ef manni er alltaf illt einhvers staðar, gott að muna það.
Við tókum bleika daginn með trompi hérna á heimilinu. Lilja fór í bleikt pils og bleika peysu, Gabríel fékk lánaða bleika skyrtu hjá mér og fór í henni í skólann og í afmæli (fannst það nú eiginlega merkilegast :), Þórólfur fór í bleika skyrtu og ég í skærbleikan kjól. Fattaði bara ekki að taka mynd af okkur þegar tækifæri gafst í morgun, rækatlans.
Sé ekki betur en að það sé frábær helgi framundan. Fimleikar hjá Lilju, hlaup hjá okkur, Esjuferð og jafnvel Viðeyjarferð ef allt gengur upp. Okkur langar að fylgjast með þegar Friðarsúlan er kveikt. Við erum miklir aðdáendur. Bæði vegna þess að við sjáum hana beint út um dyrnar hjá okkur (notalegt að byrja daginn á því) og svo er kveikt á hennu á dánardægri hennar elsku tante Astrid, sem okkur þótti svo óendanlega mikið vænt. Fyrir okkur er þetta ljósið hennar tante.
4. okt. 2010
Kryptonite
Ja ef ég er ofurkvendi, þá er einhver að sniglast í kringum mig með Kryptonite!
Átti frábæran laugardag sem byrjaði með 18 km skokki í blíðunni með Simma og Jóa í eyrunum á meðan Þórólfur fór með Lilju í fimleika. Gabríel hafði fengið að gista hjá vini sínum, ásamt 4 öðrum guttum, þvílíkt gaman hjá þeim. Tengdamamma átti afmæli og við kíktum til hennar með smá pakka eftir hádegið. Drifum okkur svo í bæinn á kaffihús en við erum búin að uppgötva að ef við tökum með litabók og liti fyrir Lilju þá getum við dinglað okkur í góðan klukkutíma yfir kaffibolla, spjalli og kíkt í tímarit. Það er notalegt. Enduðum daginn á sundferð í Mosfellsbæ en þar er uppáhalds sundlaugin okkar, barnalaugarnar eru heitar og Lilja getur farið sjálf í rennibrautirnar og valið um 3 mismunandi leiðir. Hún fer milljón ferðir og á meðan er maður vel haldinn í hlýrri laug til að taka á móti henni. Algjör snilld.
Fann pestina læðast niður í hálsmálið á mér seint á laugardagskvöldið, kom svo sem ekkert svakalega á óvart, annar hvor maður í vinnunni búin að leggjast. Ég átti von á tveimur bræðrum mínum og fylgifiskum í brunch á sunnudaginn og ákvað því að setja pestina á hold. Brunchinn var frábær, ég spilaði út fullt af trompum sem ég hef pikkað upp hjá heilsusamlegu hlaupastelpunum mínum. Bauð m..a. uppá ávaxtasalat með vanilludressingu, hummus með sólþurrkuðum tómötum, heimabakað Sibbubrauð (döðlubrauð :). Bóndinn sá um desertinn að venju og töfraði fram dýrindis Creme Brulee. Viðstödd tækjafrík fengu í hnén þegar þeir sáu brennarann sem hann notar til að bræða hrásykursskelina ofan á, úh la lahhh...
Við vorum búin að plana leikhúsferð með krakkana seinnipartinn á sunnudaginn en ég þurfti að játa mig sigraða og skreið undir sæng. Buðum Mirru litlu frænku í minn stað og Þórólfur fór með alla krakkana á 'Með horn á höfði'. Sýndist allir vera ánægðir með sýninguna og Lilja var dugleg að segja mér frá öllu sem gerðist í sýningunni og leika það helst líka...
Var bara áfram eins og drusla fram eftir kvöldi en ákvað að reyna að hressa mig við, sjá hvort súrefnið myndi ekki gera mér gott. Dúðaði mig og labbaði einn góðan hring um hverfið og leið skömminni skár á eftir. Það dugði skammt, vaknaði með hausverk, sár í hálsinum og kvef í hausnum. Er þess vegna heima í sjálfsvorukunnarkasti af því það er svoooo gott veður úti og ég kemst ekki út að sprikla. Fæ alveg grænar af þessu væli í mér þegar ég sé það svona á prenti, díhhh... Í hinu stóra samhengi er ég lukkunar pamfíll og veit það. Góðar stundir :)
1. okt. 2010
Fjölskylduhrúga
Aðeins að taka til í Picasa og fann þessa mynd frá 2007 sem minnti mig á hvað ég hlakka til að eyða tíma með fjölskyldunni minni um helgina.
Náði langþráðu markmiði í gærkvöldi. Ég lærði að synda skriðsund fyrir tæpum fimm árum hjá honum Mads, sem var þá þjálfari ÞríR. Ó hvað það var erfitt og ég veit ekki hversu oft ég hugsaði með mér að þetta væri nú ekkert fyrir mig, hæfileikar mínir lægju greinilega annars staðar. Mads var endalaust að kalla mig upp á bakka, nei ekki svona, aðeins meira svona, vertu bein, hendurnar svona... og ég niðurlút eins og skömmustulegur krakki. En á endanum komst ég í gegnum erfiðasta hjallan og náði þeim áfanga að geta synt eins lengi og mig langaði, bara ekkert svakalega hratt...
Einn daginn sagði Mads við mig að þegar ég gæti synt 100 m skrið á innan við 1:50, þá myndi hann hlaupa 10 km. Korteri seinna var ég orðin ólétt af henni Lilju, fór að vinna í Rússlandi og sundið datt meira og minna upp fyrir hjá mér næstu árin. Alla vega komst ég aldrei undir 1:50.
Nú er ég búin að synda reglulega í mánuð og það er allt annað að byggja ofan á góðan grunn en að byrja frá grunni... Þrjár æfingar í viku og í gærkvöldi fór ég í fyrsta sinn undir 1:50. Það voru tveir 100 m sprettir í prógramminu, þann fyrri fór ég á 1:44 og seinni á 1:43. Jibbííí!
Búin að senda Mads skilaboð á Facebook :)
29. sep. 2010
Uppskrift af góðu skapi :)
7 km upphitun í rigningu og roki með flottu fólki (að innan sem utan :).
400 m sprettur á harðakani.
50 öklahopp (ímynda sér að maður sé Masaíi).
10 Burpees í grasinu og fatta að maður setti hendina ofan í einn blautan gæsaskít og annar er rétt fyrir neðan nefið á manni.
30 uppsetur, já þá leggst maður á bakið í rennandi blautt grasið með öllum gæsaskítnum.
Hlaupa út í runna og pissa.
30 hnébeygjur á meðan hinir klára að hoppa á einni löpp 20 m fram og til baka (bakið stoppar mig í því).
400 m sprettur á harðakani og reyna núna að halda í við strákana.
30 hnébeygjur með annan fótinn upp á bekk.
Aftur í grasið og gæsaskítinn, liggja á maganum eins og selur og gera bakfettur 15 á hvorri hlið.
Yfir á hliðina og 30 hliðar uppsetur á hvoru megin.
15 dýfur á bekknum.
30 framstig
Beinustu leið í 800 m sprett, tvisvar sinnum skemmtilegra en 400 metrarnir...
Byrja svo upp á nýtt og taka aðra umferð í þrekið og sprettum.
Skakklappast svo í gegnum Laugardalinn í skýfalli, ennþá með öllu fallega fólkinu.
Kveðja félagana, beygja heim á leið með bónda sínum.
Teygja vel á tröppunum og rífa sig úr gegnblautum gæsaskítslyktandi hlaupagallanum fram á gangi og vona að nágrannarnir séu ekkert á ferðinni.
Læðast inn þar sem mamma manns og krakkarnir taka á móti manni með knúsum og kossum.
Litla skvísan manns borar nefinu á sér inní naflann á manni og segir 'Ég elska ískalda bumbu mamma'.
Þá er allt gott í heiminum, getur ekki klikkað!

Arghhhh!!!
Ég er hundleið á þessum degi og eins gott að það sé hlaupaæfing á eftir, sem ég n.b. nenni ekki á þessa stundina! Skítaveður, glötuð ríkisstjórn, apakettir á Alþingi, njólar í kjallaranum og svo hringdi sonur minn í mig rétt í þessu með kökkinn í hálsinum, búið að stela hlaupahjólinu hans í skólanum.
Hann sem er svo passasamur með hlaupahjólið sitt. Fékk meira að segja leyfi hjá umsjónakennaranum til að geyma það inní skólastofunni. Í dag var heimilisfræði í síðasta tíma og þá þurfti hann að taka það úr heimastofunni sinni því henni var læst, mátti ekki taka það með inn í heimilisfræða stofuna og þurfti að skilja það eftir fyrir utan dyrnar.
Nú langar mig í súkkulaði og ég ætla ekki að fá mér. Þá vinn ég.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)