7 km upphitun í rigningu og roki með flottu fólki (að innan sem utan :).
400 m sprettur á harðakani.
50 öklahopp (ímynda sér að maður sé Masaíi).
10 Burpees í grasinu og fatta að maður setti hendina ofan í einn blautan gæsaskít og annar er rétt fyrir neðan nefið á manni.
30 uppsetur, já þá leggst maður á bakið í rennandi blautt grasið með öllum gæsaskítnum.
Hlaupa út í runna og pissa.
30 hnébeygjur á meðan hinir klára að hoppa á einni löpp 20 m fram og til baka (bakið stoppar mig í því).
400 m sprettur á harðakani og reyna núna að halda í við strákana.
30 hnébeygjur með annan fótinn upp á bekk.
Aftur í grasið og gæsaskítinn, liggja á maganum eins og selur og gera bakfettur 15 á hvorri hlið.
Yfir á hliðina og 30 hliðar uppsetur á hvoru megin.
15 dýfur á bekknum.
30 framstig
Beinustu leið í 800 m sprett, tvisvar sinnum skemmtilegra en 400 metrarnir...
Byrja svo upp á nýtt og taka aðra umferð í þrekið og sprettum.
Skakklappast svo í gegnum Laugardalinn í skýfalli, ennþá með öllu fallega fólkinu.
Kveðja félagana, beygja heim á leið með bónda sínum.
Teygja vel á tröppunum og rífa sig úr gegnblautum gæsaskítslyktandi hlaupagallanum fram á gangi og vona að nágrannarnir séu ekkert á ferðinni.
Læðast inn þar sem mamma manns og krakkarnir taka á móti manni með knúsum og kossum.
Litla skvísan manns borar nefinu á sér inní naflann á manni og segir 'Ég elska ískalda bumbu mamma'.
Þá er allt gott í heiminum, getur ekki klikkað!
29. sep. 2010
Arghhhh!!!
Ég er hundleið á þessum degi og eins gott að það sé hlaupaæfing á eftir, sem ég n.b. nenni ekki á þessa stundina! Skítaveður, glötuð ríkisstjórn, apakettir á Alþingi, njólar í kjallaranum og svo hringdi sonur minn í mig rétt í þessu með kökkinn í hálsinum, búið að stela hlaupahjólinu hans í skólanum.
Hann sem er svo passasamur með hlaupahjólið sitt. Fékk meira að segja leyfi hjá umsjónakennaranum til að geyma það inní skólastofunni. Í dag var heimilisfræði í síðasta tíma og þá þurfti hann að taka það úr heimastofunni sinni því henni var læst, mátti ekki taka það með inn í heimilisfræða stofuna og þurfti að skilja það eftir fyrir utan dyrnar.
Nú langar mig í súkkulaði og ég ætla ekki að fá mér. Þá vinn ég.
27. sep. 2010
Öðruvísi helgi
Fór á tjúttið með vinnufélögunum á föstudagskvöldið og það er sko langt síðan síðast. Fórum út að borða á Eldsmiðjunni og svo var haldið í sal þar sem búið var að græja partý stemmningu með öllu. Jónsi í Svörtum fötum var trúbador og svo var bara disco og læti. Hrikalega gaman, dansaði af mér rassinn og náði samt að vera komin heim á skikkanlegum tíma!
Þakkaði fyrir hvað ég var ofur skynsöm morguninn eftir þegar ég var að græja litlu dömuna mína í fimleika en þar vorum við mættar á slaginu 9. Ég var búin að ákveða að sleppa öllum æfingapælingum og bara sjá hvernig dagurinn yrði og það varð úr að við mæðgur fórum í Kringluna beint eftir fimleika og þar krúttuðumst við fram að hádegi. Við versluðum heilmikið á vask dögunum í Hagkaup, nú er búið að græja kuldaskó fyrir veturinn og svo keypti ég nokkrar litabækur, það er algjörlega málið hjá minni núna. Settumst svo á Kaffitár en þar eru mamma og pabbi vön að hitta sína félaga á laugardögum og við slógumst í hópinn. Ekki slæmt að sötra kaffi og narta í súkkulaðibitakökur í semi-rykugu ástandi...
Seinni partinn var ég svo komin topp form og ákvað að skjótast út í smá hlaupatúr. Veðrið var svo gott og ég klukkulaus og áður en ég vissi af var ég komin langleiðina með sunnudagshringinn okkar þannig að ég ákvað bara að klára hann, 18 km, ánægð með gömlu! Kom heim rétt um kvöldmatarleytið og dreif þá krakkana með mér í sund í Árbæjarlaug. Þeim fannst voða spennandi að vera svona seint á ferli og voru alveg til fyrirmyndar, Gabríel drauma-stóribróðir sem fór með systur sína í heilmargar ferðir í rennibrautina. Eftir sund fengum við okkur bita á Subway og stoppuðum svo í Hagkaup á leiðinni heim til að ná í pínu nammi, enda nammidagur. Skriðum heim rétt fyrir hálf tíu en þá var Þórólfur heldur betur farin að sakna okkar...
Fann engan fiðring þegar ég hugsaði um Hjartadagshlaupið og hreinlega nennti ekki að fara í það. Sendi bóndann af stað með árnaðaróskum, setti upp svuntuna og bakaði lummur í staðinn. Bauð svo í lummukaffi og var alsæl að vera heima hjá mér. Seinni partinn tók sig upp gömul hreyfingarþörf og þá dreif ég mig niðrí laugar og ákvað að taka smá stöðupróf í 1000 m skiði. Ég hoppaði út í laug og byrjaði strax að taka tímann með snúningum í kafi (er mjög léleg í þeim n.b.). Synti 1000m á 21:06 og það eru miklar framfarir bara á síðustu vikum frá því ég byrjaði á sundæfingunum. Nú ætla ég að taka svona stöðupróf á sunnudögum en reikna með að hita aðeins upp fyrst og snúa venjulega næst til að fá betri mynd af stöðunni. Ætla pottþétt undir 20 mínútur fyrir jól! (held ég...).
Agga frænka er engum lík. Ég heyrði í henni fyrir nokkru þegar hún átti afmæli og sagði að ég þyrfti nú endilega að bjóða henni í kaffi einhvern sunnudaginn. Á laugardagskvöldið hringdi mín og sagðist ekki geta komið í kaffi á morgun..., hvort það væri ekki bara betra að hún kæmi í mat :) Ekki spurning, frábær hugmynd! Ruslaði upp veislu úr frystinum, það eina sem þurfti að kaupa var sýrður rjómi og sítróna, hitt var til eða hægt að ná í út í garð. Ofnbakaður lax með sítrónu og graslaukssósu, steiktur humar í hvítlaukssmjöri og nýsoðið hangikjöt (afgangur sem ég hafði fengið frá mömmu og pabba) Surf and turf þema, LOL. Frönsk súkkulaðikaka með rjóma og rifsberjum úr garðinum, voilà!
Frábær öðruvísi helgi
24. sep. 2010
Gönguferð í Búrfellsgjá
Fór í skemmtilega gönguferð með vinnufélögum hans Þórólfs í Heiðmörkina í gær eftir vinnu. Gengum inn í Búrfellsgjá og þaðan upp á Búrfellsgíginn og inn í Kaldárssel. Lilja var í besta skapinu sínu, söng, trallaði og blaðraði alla leiðina. Eftir gönguna fór hópurinn í golfskálann við Hvaleyri og þar var boðið upp á dýrindis kjúklinga salat og með því. Allir voru sammála um að við þyrftum að endurtaka þetta og ganga aftur saman og þá lá beinast við að stofna gönguhóp... Afturgöngurnar!
Ég rétt náði sund fyrirlestrinum hjá honum Remí, mjög fróðlegt og á örugglega eftir að nýtast vel í æfingunum í vetur. Gabríel er í samræmdu prófunum, búin með íslensku og í dag er það stærðfræðin. Hann er vel undirbúin og á örugglega eftir að standa sig með prýði.
23. sep. 2010
Sjúkleg Esja
Eina skothelda leiðin til þess að losna við Esju harðsperrur er... að fara aðra Esju. Var á fundum allan daginn í gær með Esjuna fyrir augunum og eftir vinnu ákvað ég að breyta út af plani, sleppa hefðbundinni æfingu og bruna upp í fjall. Fór vinstra megin upp í þetta sinn og hljóp niður hægra megin. Var vel innan við klukkutímann upp og niður.
Það er planið að fara í gönguferð með vinnufélögum Þórólfs eftir vinnu í dag, krakkarnir með, þannig að ég tók sundæfingu dagsins, í morgun, til vonar og vara ef ég myndi ekki ná í tæka tíð á æfingu í kvöld.
Það gekk voða vel að synda, tók heilmikið baksund og drillur. Þegar síga tók á seinni hlutann voru 3 * 100 m skrið. Ég er með markmið að komast undir 1:50 og notaði tækifærið til að taka stöðuna. Fyrsti 1:52, nokkuð gott, 45 sek hvíld á milli og svo annar... 1:44!! Þvílíkt ánægð með mig. Svo var gefið í botn og þriðji á... 1:33, hmmmm.
Bankaði í klukkuna og fór að líta í kringum mig. Sé ég þá ekki hvar sundlauga kallinn er að færa miðju skilrúmið til að stækka laugina úr 25 m í 50m og ég er þeim megin sem laugin minnkar!!! Ekkert verið að láta mann vita, hrmfff... Snautaði út með skottið á milli lappanna og tók 2 * 100 m þar, 1:52 og 1:54. Er bara nokkuð sátt og þetta er allt í rétta átt, stutt síðan ég komst ekki undir tvær.
22. sep. 2010
Bikarmeistari í götuhjólreiðum 2010
Í gær var lokahóf hjólreiðanefndar ÍSÍ. Þar var farið yfir keppnistímabilið 2010, framtíðarplön, keppnisreglur, bikarmeisturum afhent verðlaun, tilnefningar til hjólreiðamanns og konu ársins og margt fleira. Það er greinilega mikill metnaður hjá hjólreiðanefndinni að hafa skýrar, gengsæjar og sanngjarnar reglur. Sannarlega fyrirmyndar vinnubrögð á þeim bænum og gaman að vera með.
Bikarmeistari í götuhjólreiðum 2010
Margrét, Eva og Ása
Við Margrét vorum voða glaðar með þetta.
Styrktaraðilarnir mínir hjá EAS eru voða ánægðir með mig. Þær vörur sem ég nota (n.b. ég skipti ekki út máltíðum fyrir fæðubótadrykki!) eru Iso Drive, sem ég nota sem orkudrykki á löngum og erfiðum æfingum, Mass Factor prótein drykki eftir erfiðar æfingar til að dekka næringarþörf þangað til maður getur græjað almennilegan mat og svo er gott að redda sér á Myoplex ef maður er í tímaþröng og þarf að næra sig fyrir æfingu, létt í maga.
19. sep. 2010
Esjan mín
Hreyfing fyrir allan peninginn í um helgina. Er laus úr hlaupahvíldinni og fór rúma 10 km í gær. Í morgun fór ég Hálftímann og svo tók ég 1200m sundæfingu á eftir. Ég er svei mér þá búin að synda rúma 8 km í vikunni, sennilega meira en samtals síðustu árin... Það sem var samt toppurinn hreyfingalega séð, að eftir hádegi fór ég loksins, loksins aftur á Esjuna en ég hef ekki farið síðan sumarið 2008.
.
.
Gabríel var í afmæli og Þórólfur fór með afa Þór og Lilju í Kolaportið svo ég var ein í kotinu. Leit út um gluggann og áður en ég vissi af var ég kominn í skóna og út í bíl. Ég hef tvisvar labbað upp Esjuna (annars alltaf hlaupið :), í bæði skiptin með börnin mín. Þá fer mesti tíminn í að hvetja, ýta og tosa unguna upp og maður nýtur þess öðruvísi. Nú var ég bara alein með sjálfri mér, gat tekið þetta á mínum hraða, valið mína leið og notið þess á minn hátt. Ég fór borgaralega klædd til að missa mig ekki í að hlaupa...
Ég fór hægra megin upp, lengri leiðina og var akkúrat klukkutíma upp á topp. Ég hef bara einu sinni áður farið alla leið upp á topp og það var fyrir mörgum árum síðan. Mér fannst leiðin frá Steini ansi óljós á köflum og var vappandi fram og til baka þangað til ég fann mér mann til að elta. Frábært veður og útsýnið engu líkt. Var í samfloti við manninn sem ég fann á leiðinnu upp, alvanur Esjumaður, langleiðina niður og þá fórum við vinstra megin. Síðasta hlutann tóku fæturnir af mér völdin og hlupu af stað, það er bara miklu erfiðara að reyna að halda aftur af sér en að láta sig rúlla niður. Var komin heim á undan fólkinu mínu, alsæl með Esjuferðina mína.'
Toppurinn
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)



